Hvítárbyggð
Sjón er sögu ríkari – komdu og upplifðu Hvítárbyggð!
Arkitektar & hús
Guðmundur Jónsson Arkitektkontor
Guðmundur Jónsson Arkitektkontor var stofnað 1987 og býr því yfir langri reynslu í stórum sem smáum verkefnum. Guðmundur Jónsson er margverðlaunaður, í alþjóðlegum, norskum og íslenskum samkeppnum, og hefur hlotið ýmis menningarverðlaun fyrir verk sín í Noregi og á Íslandi.
Eftir að hafa unnið að fjölda menningarbygginga, einbeitir stofan sér nú að sumarhúsum (heilsárshúsum) og einbýlishúsum, bæði í Noregi og á Íslandi.
Mörg verkanna eru birt í fjölmörgum alþjóðlegum fagbókum, tímaritum og víðsvegar á netinu. Sumum bygginganna hafa verið gerð góð skil í sjónvarpsþáttum.
Guðmundur er oft á Íslandi að sinna verkefnum, og vinna og samskipti gegnum netið er auðfengið eins og títt er orðið fyrir löngu. Hönnunartakstinn er sá sami og á öðrum arkitektastofum á Íslandi.





AKA er arkitektastofa með aðsetur í Stokkhólmi, stofnuð af Klöru Kedborn og Andrew Young. Í yfir tíu ár hefur stofan unnið að fjölbreyttum hönnunarverkefnum í Svíþjóð, á Íslandi og víðs vegar um Evrópu og býður upp á heildstæða þjónustu á sviði arkitektúrs, innanhúss- og landslagshönnunar.
AKA sérhæfir sig í vönduðum, endingargóðum og sjálfbærum íbúðarhúsum þar sem arkitektúr fellur náttúrulega að íslensku landslagi. Stofan leggur áherslu á falleg og vel hönnuð rými með sterkri tengingu milli úti- og innisvæða, ásamt lausnum sem taka mið af krefjandi og fjölbreyttum veðurskilyrðum Íslands.
AKA vinnur náið með viðskiptavinum sínum og veitir persónulega og vinalega ráðgjöf á öllum stigum ferlisins til að gera hugmyndir að veruleika og skapa draumaheimili. Góð samvinna við verktaka, verkfræðinga, framleiðendur og aðra samstarfsaðila tryggir hnökralaust ferli við hönnun og framkvæmdir.
Frá árinu 2017 hefur AKA Studio hannað fjölda íbúðarhúsa um allt land og er stolt af farsælu og langvarandi samstarfi sínu við íslenska byggingaraðilann ARNO. Stofurnar hafa unnið saman að fjölmörgum verkefnum í timburgrindarhúsum.
.jpeg)
Arctic North ehf. var stofnað árið 2009 og hefur byggt upp yfir 30 ára reynslu í byggingariðnaði á Íslandi. Við erum leiðandi í þróun og smíði einingahúsa, sem sameina nýstárlega hönnun, sjálfbærni og hagkvæmni. Með sterka áherslu á gæði, traust og einfaldleika, bjóðum við lausnir sem henta nútíma kröfum og íslenskum aðstæðum.
ARNO er umboðsaðili HusLine á Íslandi. Öll einingahúsin eru framleidd af HusLine í Litháen og uppfylla bæði íslenska byggingareglugerð og strangan norskan staðal (SINTEF).
Hvert verkefni hefst á vandaðri og persónulegri ráðgjöf. Við vinnum náið með þér að hönnun, skipulagi og efnisvali fyrir nýja einingahúsið þitt, með áherslu á gæði og langtíma hugsun.
Í samstarfi við reynda arkitekta og aðra fagaðila tryggjum við faglegar útfærslur og traustar forsendur í hverju verkefni. Þú getur valið heildarþjónustu frá ARNO og treyst því að við höfum umsjón með ferlinu frá upphafi til enda.
.webp)
.webp)
